Bloggleti eða ekki? Veit hvort það er en það er allavega búið að
vera nóg gera þessa dagana í vinnunni og því hefur maður ekki gefið
sér tíma til að blogga.
Við hjónin komum úr sumarfríi fyrir um 3 vikum og það var gaman
hjá okkur og bendi ég á bloggið hjá konunni minni en hún bloggaði
og settir inn myndir úr sumarfríinu. Ég er stoltastur af
veiðiferðinni í fnjóská en ég og pabbi fórum þangað og gerðum góða
veiðitúr og eru myndir af veiðinni á blogginu hjá Eygló.
Bloggið hjá Eygló: http://gloin.blogspot.com/
Eins og ég sagði að þá er búið vera nóg gera í vinnunni og ber
það helst að við erum búnir að vera vinna í nýrri hagkaupsbúð sem á
að opna í haust í holtagörðum þar gamla ikea búðin var. Er svo að
klára bakvakt núna og vonandi fer að gefast smá gefast smá tækifæri
til að kíkja í smá veiði og jafnvel golf áður sumarið er búið.
Jæja læt þetta duga í bili
Kv. Björn Ingi